16.1.2012 | 18:09
Kolrangur útreikningur
Kostnaður við Vaðlaheiðagöng og aðrar vegaframkvæmdir eru í raun reiknaðar kolrangt. Tölurnar sem eru í umræðunni eru í raun bara útgjöld. Það gleymist að draga frá þær tekjur sem koma strax til baka í Ríkissjóð. Þ.e. Virðisaukaskattur, tekjuskattur, vörugjöld og eins og árar núna, þá mætti reikna atvinnuleysisbætur með. Allir þessir liðir samsvara á milli 60%-80% af útlögðum pening. Ríkissjóður ætti því að fjármagna 60%-80% af útgjöldunum með skammtímalánum. Langtímalán yrðu síðan tekin til að fjármagna hinn raunverulega kostnað. Það væri ansi mikill munur á veggjöldum ef þau miðuðust síðan við raun kostnað, sem væri 20%-40% af útgjöldum. Síðan er hægt að bæta við tekjuliðina; öryggi, minni orkunotkun vegfarenda, minni kostnaður við snjómokstur og minna slit á farartækjum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2012 | 22:01
Íþróttamaður ársins
Já, á Íslandi dugar ekki að vera "HEIMSMEISTARI" til að vinna titilinn. Íþróttamaður ársins
|
Heiðar íþróttamaður ársins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2012 | 21:59
Íþróttamaður ársins
Já, á Íslandi dugar ekki að vera "HEIMSMEISTARI" til að vinna titilinn. Íþróttamaður ársins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2011 | 14:12
Hafði Ólafur Ragnar nokkuð val?
Hafði Ólafur Ragnar nokkuð val?
Ólafur Ragnar neitaði að samþykkja svokallað fjölmiðla frumvart og bar hann við djúpa gjá milli þjóðar og Alþingis sem staðfestist með áskorun yfir 20.000 Íslendinga. Hvernig gat hann þá farið gegn áskorun 55.000 Íslendinga. Það voru þessir 55.000 Íslendingar sem skoruðu á Ólaf Ragnar, sem stoppuðu Icesave samþykktina
|
Icesave-málið erfitt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.12.2011 | 13:34
14 fæðast, 5,5 deyja og 7 flytja burt frá landinu
Að meðaltali fæðast 14 Íslendingar á dag, 5,5 deyja og 7 flytja frá landinu og samt eru yfir 11.000 Íslendingar atvinnulausir. Það er sagt að 25 ára einstaklingur sé um 1/2 milljarður að verðmæti fyrir þjóðfélagið. Þ.e. sá kostnaður sem hefur verið af þjónustu og menntun við þennan einstakling plús skatt og þjónustutekjur framtíðarinnar.
Núverandi Ríkisstjórn virðist ekki hafa neinn skilning á því gríðarlega tekjutapi sem Ríkissjóður verður fyrir við núverandi landflótta. Þegar ungt og jafnvel langskóla gengið fólk fer, þá hefur það kannski að mestu verið kostnaður og tekjurnar eiga eftir að koma, sem gerist aldrei ef þetta fólk fer og kemur ekki aftur. Nei, Ríkisstjórnin virðist líta á þennan brottflutning sem lækkun á atvinnuleysi og þar með sé þetta ekki stórt mál. Nú verðum við að taka fiðlurnar af Jóhönnu og Steingrími áður en allt hefur brunnið
|
Atvinnuleysi eykst |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.12.2011 | 02:58
Og áfram spila þau á fiðlur sínar
Og áfram spila þau á fiðlur sínar
|
752 sagt upp í hópuppsögnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2011 | 17:58
Hver má eiga hvað?
Hver má eiga hvað?
Hverju breytir það í raun hver á hvað? Er einhver munur á því hvort; Íslendingur, Dani, Svisslendingur, Kínverji, eða Indverji sem er búinn að búa nægilega lengi á Íslandi til að vera Íslenskur ríkisborgari. Höfum við séð það í bankahruninu og eftirmálum bankahrunsins að Íslendingar hugsi betur um Íslendinga. Voru útrásarvíkingarnir að hugsa um hag þjóðarinnar, eru Íslensku bankarnir að hugsa um hag einstaka Íslendinga þegar þeir veita lán á ákveðnum forsendum sem síðan breytast vegna glannagangs banka barnana. Þá koma þessi sömu bankabörn og hirða eigni fólks sem hafði treyst þeim þegar það tók lán hjá þeim.
Það verða allir að fara að landslögum, hvaðan sem þeir koma. Við þurfum ekki að óttast að allir sem vilja fjárfesta á Íslandi séu að gera það til að féfletta Ísland. Laugin eiga að vera það skýr að það fari ekki milli mála, hvað má eða ekki. Náttúruauðæfi eiga að vera sameign þjóðarinnar í öllu falli og þá er ekki spurning um einstaklinginn, hvaðan sem hann er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.11.2011 | 12:52
Leppar Vinstri Grænna
Hefur Samfylkingarfólk enga sjálfsvirðingu? Vinstri Grænir hafa gert Samfylkinguna að leppum í ríkisstjórn Vinstri Grænna. Samfylkingin sér engan möguleika að klára viðræður um inngöngu í ESB með öðrum stjórnmálaflokkum og Vinstri Grænir nota sér þetta og hafa í raun tekið öll völd í ríkisstjórninni, vitandi það að sama hvað þeir gera, þá mun Samfylkingin kannski kvarta, en þau slíti aldrei stjórnarsamstarfinu. Samfylkingin er svo blind, að þau sætta sig við að Vinstri Grænir hafa sett sinn mesta ESB andstæðing yfir þau tvö málefni sem verða erfiðust í viðræðum við ESB, þ.e. Landbúnaðar- og Sjávarútveg
|
Vekur spurningar um samstarfið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2011 | 12:51
Leppar Vinstri Grænna
Hefur Samfylkingarfólk enga sjálfsvirðingu? Vinstri Grænir hafa gert Samfylkinguna að leppum í ríkisstjórn Vinstri Grænna. Samfylkingin sér engan möguleika að klára viðræður um inngöngu í ESB með öðrum stjórnmálaflokkum og Vinstri Grænir nota sér þetta og hafa í raun tekið öll völd í ríkisstjórninni, vitandi það að sama hvað þeir gera, þá mun Samfylkingin kannski kvarta, en þau slíti aldrei stjórnarsamstarfinu. Samfylkingin er svo blind, að þau sætta sig við að Vinstri Grænir hafa sett sinn mesta ESB andstæðing yfir þau tvö málefni sem verða erfiðust í viðræðum við ESB, þ.e. Landbúnaðar- og Sjávarútveg
|
Huang Nubo er hættur við |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.11.2011 | 14:25
Er þetta nokkuð rasismi ?
Er þetta nokkuð rasismi ? Nær öll umræða hefur gengið út á að maðurinn er frá Kína og hann sé hluti af Kínversku samsæri þar sem þeir ætli sér ýmsa slæma hluti á Íslandi.
|
Huang að kynna sér ákvörðunina |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)




benediktae
jari